Málbrú verður innleidd á þremur hjúkrunarheimilum SFV
Í þessari viku hefst prófunarfasi Málbrúar á þremur deildum hjúkrunarheimila innan SFV.
Málbrú mun hefja göngu sína á deildinni Fossi, á Hrafnistu Sléttuvegi, á Heilsuvernd Vífilstöðum og á Hjallatúni á Vík. Þökkum við stjórnendum, mentorum, þátttakendum og öðru starfsfólki innilega fyrir þátttökuna. Jafnframt viljum við koma á framfæri þakklæti til Bara tala, sem hafa stutt dyggilega við verkefnið.
Aðdragandi Málbrúar var ítarleg greining á þörf innan aðildarfélaga SFV, hugmyndavinna út frá þeirri greiningu og stefnumótun. Heiða Björk Vignisdóttir, lögfræðingur SFV, leiddi vinnuna ásamt stýrihópi, skipuðum fulltrúum hjúkrunarheimila. Í kjölfar þeirrar vinnu var Rebekka Levin (Levingroup ehf.) ráðin til starfa til að móta og þróa heildstæða lausn á grundvelli greiningar og stefnumótunar stýrihóps, og úr varð Málbrú.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið og byggir á samningi aðila um þróun og innleiðingu starfstengdrar íslenskufræðslu fyrir starfsfólk hjúkrunarheimila með annað móðurmál en íslensku, frá 2024.
Um 35% starfsfólks hjúkrunarheimila með annað móðurmál en íslensku
Um 20% íbúa á Íslandi eru með annað móðurmál en íslensku og hækkar hlutfallið upp í 35% þegar litið er til starfsfólks á hjúkrunarheimilum. Á vinnustöðum þar sem samskipti skipta sköpum fyrir öryggi, vellíðan og liðsheild er tungumálið lykillinn.
Við vinnum í fjöltyngdu umhverfi og það er styrkleiki. Málbrú er okkar svar við þeirri staðreynd.

Málbrúarverkefnið byggir á daglegu samtali og samverustundum á vinnustað
Málbrú byggir á fyrirmyndum frá Svíþjóð þar sem áhersla er lögð á einfaldar, reglulegar æfingar í daglegu starfi í formi stuðnings á vinnustaðnum, á vinnutíma en ekki hefðbundna kennslu.
Í prófunarfasanum munu mentorar á deildum styðja samstarfsfólk sem er að læra íslensku með:
- stuttum samtölum á vinnutíma
- sérstöku Málbrúar-viðmóti í appinu Bara tala
- starfstengdu efni úr verkfærakistu Málbrúar
- samverustundum sem styrkja liðsheild og öryggi í samskiptum.
Markmið verkefnisins er að þróa og prófa nýja aðferð við að læra tungumálið sem nýtist fjölbreyttum vinnustöðum innan velferðarþjónustunnar.
Að prófunarfasa loknum er það von okkar að Málbrú geti orðið fyrirmynd fyrir fleiri hjúkrunarheimili og aðildarfélög SFV. Prófunardeildirnar þrjár gegna hér lykilhlutverki í mótun verkefnisins og leggja grunninn að framtíðarsýn og þróun.
Við þökkum öllum þeim sem hafa komið að verkefninu, stutt það, veitt okkur ráðgjöf og innsýn og haft sömu ástríðu og við fyrir því að skapa betri vinnustaði þar sem allir tilheyra.