Fréttir og tilkynningar

Aðalfundur SFV verður haldinn 28. apríl

Boðað er til aðalfundar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu þriðjudaginn 28. apríl nk. kl. 13.00. Staðsetning fundarins er: Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Að loknum aðalfundarstörfum verður efnt til stefnumótunarfundar aðildarfélaga SFV. Sá fundur hefst kl. 14:30. Þar verður farið yfir og rædd drög frá stjórn að nýrri stefnu SFV.

Boðið verður upp á léttar veitingar milli funda.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag fundanna og skráningu, atkvæðisrétt, lagabreytingar og fleira er að finna í pósti sem sendur hefur verið til forsvarsfólks aðildarfélaga SFV.

Þau sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu eru hvött til að senda tölvupóst þess efnis á netfangið sigurjon@samtok.is.

Ársreikningur SFV 2025 og önnur fundargögn verða send út þegar nær dregur fundi.