Heildarkjarasamningur SFV og Sameykis gefinn út
Þann 6. febrúar s.l. gáfu SFV og Sameyki út heildarkjarasamning sem byggir á fyrri kjarasamningum samningsaðila.
Í kjarasamningi samningsaðila sem undirritaður var 2. júlí 2024 var gerð bókun um útgáfu heildarkjarasamnings. Samningsaðilar komu sér saman um að fella efni nýjasta samningsins inn í heildartexta kjarasamningsins og eftir því sem við átti, fella brott bókanir sem ekki ættu lengur við.
Ákveðið var að miða gildistöku heildarkjarasamningsins við 1. nóvember 2024, þrátt fyrir að gildistími hans sé frá og með 1. apríl 2024. Ástæða þess er sú að umfangsmiklar breytingar á kjarasamningnum, þar á meðal breytingar sem lúta að fylgiskjölum 1 og 2 um betri vinnutíma, tóku ekki gildi fyrr en 1. nóvember 2024.
Vakin athygli á því að við gerð heildarkjarasamningsins var bókun um önnur laun uppfærð. Hún er nú bókun 6 meðal bókana ársins 2024 (áður bókun 9 frá árinu 2019). Samkvæmt uppfærðri bókun skulu önnur laun samkvæmt grein 1.1.3 hækka á samningstímanum sem hér segir:
• 3,25% hækkun frá 1. apríl 2024
• 3,5% hækkun frá 1. apríl 2025
• 3,5% hækkun frá 1. apríl 2026
• 3,5% hækkun frá 1. apríl 2027
Hér að neðan eru gagnlegir tenglar:
Heildarkjarasamningur SFV og Sameykis
Leiðbeiningar stýrihóps um betri vinnutíma