Fréttir og tilkynningar

Umsóknarfrestur um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra er til 23. febrúar

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 23. febrúar 2026.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.

Sérstök athygli er vakin á nýlegri reglugerðarbreytingu sem heimilar stjórn sjóðsins að veita allt að 50% framlag vegna viðhalds og endurbóta í stað 20/40% áður.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari upplýsingum, aðgengilegt á vef Stjórnarráðsins og umsóknareyðublöðin skal nálgast á Eyðublaðavef stjórnarráðsins.

Mikilvægt er að skila öllum umbeðnum upplýsingum og fylgiskjölum innan tilskilins frests. Ekki verður tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.