Fréttir og tilkynningar

Námslínan Stjórnendur og starfsmenn í þriðja geiranum

DSF0357

Þann 8. október hefst námslínan Stjórnendur og starfsmenn í þriðja geiranum í Opna háskólanum í HR. Aðildarfélög SFV falla vel innan þriðja geirans því með honum er átt við félög sem starfa í almannaþágu. Oft á tíðum eru áskoranirnar öðruvísi en hjá hagnaðardrifnum félögum eða opinberum stofnunum. Til að mynda er fjármögnun með öðrum hætti og viðskiptavinir eru aðrir, auk þess sem stjórnun sjálfboðaliða kallar á annars konar mannauðsstjórnun.  

Nánari upplýsingar og skráning hér:

Stjórnendur og starfsmenn í þriðja geiranum

SFV er samstarfsaðili að náminu og aðildarfélög samtakanna fá 10% afslátt af verði námsins.

Til að nýta sér afslátt SFV á námslínuna er bent á að hafa samband við Lindu Vilhjálmsdóttur verkefnastjóra námsins í netfangið lindav@ru.is eftir að skráningu er lokið og tengir hún afsláttarkjör SFV  við skráninguna.