Fréttir og tilkynningar

Karl Óttar tekur við sem formaður stjórnar SFV.

María Fjóla Harðardóttir hefur sagt sig frá störfum sem stjórnarformaður SFV. Við keflinu tekur varaformaður SFV, Karl Óttar Einarsson, forstjóri Grundarheimilanna, og mun hann gegna hlutverki starfandi stjórnarformanns fram að næsta aðalfundi samtakanna.

Stjórn og starfsfólk SFV þakka Maríu Fjólu innilega fyrir hennar mikla og öfluga starf í þágu samtakanna.