Fréttir frá aðildarfélögum

Aukin upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta hjá Alzheimersamtökunum

Upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þess hefur verið opnuð hjá Alzheimersamtökunum. Þjónustan er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum eldra fólks, sem nefnist Gott að eldast. Markmið aðgerðarinnar er að auðvelda aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf um hvað eina sem varðar heilabilun, svo sem varðandi þjónustu og sérhæfðari ráðgjöf.

Alzheimersamtökin hafa um árabil veitt ráð vegna fólks með heilabilun en ekki haft stöðugildi fyrr en nú til að sinna upplýsinga- og ráðgjafa-þjónustu. Þjónustan er opin öllum landsmönnum og verður fólki að kostnaðarlausu. Hún verður veitt í húsakynnum Alzheimersamtakanna, í fjarviðtali eða í gegnum síma – eftir því hvað hentar best. Hægt er að panta tíma í ráðgjöf í síma 520-1082 eða með því að senda póst á netfangið radgjafi@alzheimer.is

Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi MA, er verkefnastjóri upplýsinga- og ráðgjafaþjónust-unnar. Hún útskrifaðist með starfsréttindi í félagsráðgjöf árið 2012. Hún hefur starfað á Landspítalanum, bæði á geðdeild og á Landakoti. Einnig hefur hún starfað við félagslegan heimastuðning í Reykjavík.

Rætt var um málið við Guðmund Inga Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra og Guðlaug Eyjólfsson framkvæmdastjóra Alzheimersamtakanna í Morgunútvarpi Rásar 2.