Fréttir og tilkynningar

Bjarki tekur við formennsku í stjórn SFV

Björn Bjarki Þorsteinsson tekur við formennsku í stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. 

Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna og stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, hefur ákveðið að segja sig frá trúnaðarstörfum fyrir samtökin. Við hlutverki hans tekur varaformaður stjórnar SFV, Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimlisins Brákahlíðar í Borgarnesi. María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, tekur við sem varaformaður stjórnar SFV.

Bjarki þakkar Gísla fyrir það mikla og góða starf sem hann hefur lagt af mörkum og hlakkar til að vinna með öflugri stjórn og hæfu starfsfólki samtakanna að áframhaldandi uppbyggingu þeirra:

„Við hjá SFV erum ákaflega þakklát Gísla Páli fyrir það mikla og góða starf sem hann hefur lagt af mörkum. Ég tek við góðu búi og hlakka til þess að vinna með öflugri stjórn og hæfu starfsfólki samtakanna að áframhaldandi uppbyggingu þeirra á kosningaári þar sem heilbrigðismálin og velferðarþjónustan fá vonandi verðugan sess í stjórnmálaumræðunni. Sem fyrr munu Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu leggja mikla áherslu á hagsmunagæslu félagsmanna sinna og ekki síður að koma aðstæðum þeirra og áherslum eins vel á framfæri og nokkur er kostur.“

Gísli Páll segir það lúxus að geta skilið samtökin eftir á þeim velli sem þau hafa haslað sér í höndum þeirrar samhentu stjórnar sem stýrt hefur samtökunum að undanförnu:

„Það er lúxus að geta skilið samtökin eftir á þeim velli sem þau hafa haslað sér í höndum þeirrar samhentu stjórnar sem hefur stýrt samtökunum ásamt okkur Bjarka að undanförnu.
Ég met stöðuna þannig að á þessum viðsjárverðu tímum þurfi ég á allri minni orku að halda fyrir Grundarheimilin og mér þykir ákaflega vænt um að Bjarki hafi fallist á að taka við ábyrgðum mínum og skyldum fyrir SFV á þeim tímum sem hann, eins og við öll sem stöndum í stafni öldrunarþjónustu hjúkrunarheimilanna, höfum í fjölmörg horn að líta í heimaranninum.“

Stjórn og starfsfólk SFV þakka Gísla Páli innilega fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna. 


Stjórn SFV er nú svo skipuð:

Stjórnarformaður:

Björn Bjarki Þorsteinsson, Brákarhlíð

Stjórnarmenn:

María Fjóla Harðardóttir, Hrafnistu (varaformaður)

Ásgerður Th. Björnsdóttir, SÁÁ (gjaldkeri)

Vilborg Gunnarsdóttir, Alzheimersamtökunum (ritari)

Halla Thoroddsen, Sóltúni öldrunarþjónustu ehf.; Sólvangi hjúkrunarheimili og Sóltúni Heima

Sigurður Rúnar Sigurjónsson, Eir / Skjóli / Hömrum