Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) héldu í dag umræðufund vegna Handbókar fyrir íbúa hjúkrunarheimila sem gefin var út af SFV þann 15. nóvember sl. Handbókin var unnin innan Fagráðs hjúkrunarstjórnenda SFV og er hugsuð til að auðvelda nýjum íbúum og ættingjum þeirra að átta sig á hvað sé innifalið í dvalargjaldi sem greitt er fyrir dvölina frá Sjúkratryggingum Íslands og með lögbundinni greiðsluþátttöku íbúa.
SFV þakka öllum sem tóku þátt í gerð handbókarinnar, sem og þeim sem komu og tóku þátt í fundinum í dag fyrir sitt framlag.
Hér má sjá handbókina.