Hjúkrunarfræðingar samþykktu í atkvæðagreiðslu nýgerðan kjarasamning Fíh og SFV.
Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu fór fram dagana 9. desember kl. 18:00 til 13. desember kl. 12:00. Á kjörskrá voru 430, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við SFV og eru með fulla aðild að Fíh. Alls tóku 71,63% þátt í atkvæðagreiðslunni.
Af þeim sem tóku þátt voru 290 sem sögðu já eða 94,16%.
Kjarasamningur undirritaður þann 5. desember 2024 hefur því verið samþykktur af atkvæðabæru félagsfólki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2024 og gildir til 31. mars 2028.
Frétt um niðurstöðuna er að finna á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.