Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð
Í grein á Vísi fjalla þær Rebekka Levin og Heiða Björk Vignisdóttir um verkefnið Málbrú, sem er verkefni sem Samtök fyrirtækja í Velferðarþjónustu (SFV) hafa unnið að í samstarfi við stjórnvöld. Í greininni er bent á mikilvægi þess að fólki af erlendum uppruna fái tækifæri til að læra íslensku. Tryggja þurfi að fólk hafi tíma, aðstöðu og stuðning til að læra tungumálið samhliða vinnu og fjölskyldulífi, enda íslenskukunnátta mikilvæg forsenda virkrar þátttöku í samfélaginu.
Þetta á sérstaklega við um starfsfólk hjúkrunarheimila sem hefur annað móðurmál en íslensku. Þar eru samskipti ekki aðeins hluti af vinnunni heldur grundvöllur hennar. Starfsfólk þarf að geta átt samtöl við íbúa, skilið þarfir þeirra og óskir, miðlað upplýsingum til samstarfsfólks og tekið þátt í faglegu samstarfi.
Verkefnið Málbrú byggir á norrænni fyrirmynd og sameinar stafrænt íslenskunám, stuðning mentora og tungumálaþjálfun í daglegu starfi. Hugmyndin er einföld: að nýta vinnustaðinn sjálfan sem námsumhverfi og gera íslenskunotkun að sameiginlegu verkefni starfsfólks og stjórnenda.
Ítarlegar er fjallað um verkefnið og aðdraganda þess í greininni á Vísi, tengill á hana er hér.