Fréttir og tilkynningar

Starfshópur um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu skilar tillögum

Starfshópur um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu hefur skilað skýrslu með tillögum um hlutverk dagdvala í þjónustu við aldraða og markmiðum með þjónustunni þannig að úrræðið styðji betur við þarfir fólks sem býr heima. Einnig skyldi hópurinn greina gögn um þörf fyrir dagdvalarrými, koma með tillögur um ýmsa þætti í þjónustunni eins og hvaða matstæki skuli notuð og hvernig ferli beiðna skuli vera og ýmislegt fleira. Nánar er farið yfir það í þessari frétt á síðu Stjórnarráðsins.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti skýrslunni viðtöku nýlega og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Þar má sjá ráðherra auk fulltrúa í starfshópnum, sem eru þau Þura B. Hreinsdóttir, fulltrúi Gott að eldast og formaður hópsins, Stefán Jóhannsson, tilnefndur af Sjúkratryggingum Íslands, Sigurjón Norberg Kjærnested, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Hrönn Ljótsdóttir, tilnefnd af Landspítala, félagsráðgjafasviði, Lilja Petra Ólafsdóttir, tilnefnd af velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Berglind Magnúsdóttir, fulltrúi Gott að eldast og Elsa B. Friðfinnsdóttir, án tilnefningar. Starfsmaður hópsins var Herdís Björnsdóttir, sérfræðingur í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og starfsmaður Gott að eldast.