Af niðurskurðaráformum í öldrunarþjónustu
Nýlega voru birtar niðurstöður skoðunarkönnunar sem gerð var meðal forstöðumanna ríkisstofnana. Ýmislegt forvitnilegt kom fram í þessari könnun og eitt af því sem vakti mig til umhugsunar var að um 44% forstöðumanna telja ólíklegt að hægt verði að hagræða frekar í rekstri á næsta ári. Hins vegar voru um 84% forstöðumanna sem töldu að stofnanir þeirra yrðu innan fjárheimilda í ár. Ég tel að forstöðumenn öldrunarheimila innan SFH hljóti að taka undir þessar áhyggjur forstöðumanna ríkisstofnana vegna næsta árs, eftir að hafa staðið í niðurskurði síðustu misseri. Staðreyndirnar sem við stöndum frammi fyrir segja okkur að það þarf að leita fleiri steina til að velta við og kafa enn dýpra til reyna að finna leiðir til hagræðingar og það verður varla gert nema með aðkomu ráðuneytisins.
Það er eins víst að þrátt fyrir góðan vilja verði erfitt, ef mögulegt, að koma í veg fyrir að sífellt þrengri fjárhagur heimilanna komi niður á þjónustu við heimilismenn. Forstöðumenn og starfsfólk öldrunarheimila hafi sýnt það undanfarin misseri að það er fullur vilji til að taka þátt í þeim aðgerðum sem breyttar aðstæður í þjóðfélaginu hafa kallað á. Þó að ákveðinnar þreytu sé orðið vart meðal starfsfólks þá vona ég að okkur takist að leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að komast í gegnum þessar þrengingar í von um betri tíma framundan.
Jóhann Árnason,
framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar