Fréttir og tilkynningar

Sigurjón Norberg Kjærnested hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri SFV

Sigurjón Norberg Kjærnested hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Sigurjón er verkfræðingur sem kemur til SFV eftir 9 ár hjá Samorku – samtökum orku- og veitufyrirtækja, þar sem hann var forstöðumaður og staðgengill framkvæmdastjóra. Þá var Sigurjón áður formaður innflytjendaráðs í Velferðarráðuneytinu og varaþingmaður. Sigurjón tekur við af Eybjörgu Hauksdóttur, sem ráðin hefur verið sem framkvæmdastjóri hjá Eir.

Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu eru hagsmunasamtök fyrirtækja sem starfa við velferðarþjónustu og eru sjálfseignarstofnanir, í eigu félagasamtaka, einkaaðila eða opinberra aðila. Mörg aðildarfélaganna eru öldrunarstofnanir, en einnig fyrirtæki með aðra starfsemi eins og dagþjálfun, áfengismeðferð, endurhæfingu o.fl.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að leiða SFV. Það er ekki ofsögum sagt að nú séu algerir lykiltímar fyrir fyrirtæki í velferðarþjónustu. Þrengt er að rekstri fyrirtækjanna á ýmsan hátt, á sama tíma og þarfir skjólstæðinga þeirra hafa aukist. Við slíkar aðstæður gegna samtökin lykilhlutverki. Ég hlakka því til að vinna með stjórn samtakanna að úrbótum á starfsumhverfi fyrirtækja í velferðarþjónustu.“

Gísli Páll Pálsson stjórnarformaður SFV er afar ánægður með að fá Sigurjón til liðs við samtökin. „Framundan eru mörg mikilvæg og krefjandi verkefni og ég er þess fullviss að Sigurjón mun reynast okkur góður liðsstyrkur í þeim öllum. Hann hefur reynslu af svipuðum verkefnum í fyrra starfi og kemur eflaust með gagnlega hluti í væntanlegri baráttu okkar góðu samtaka fyrir bættri velferð þeirra sem njóta velferðarþjónustu hér á landi.

Sigurjón hefur störf hjá SFV í byrjun júní.

Stjórn og starfsfólk SFV bjóða Sigurjón velkominn til starfa.

 

Fréttatilkynning 9. apríl 2021